Samheldni átakssjóður var stofnaður af frumkvæði Samherja með það skýra markmið að sameina íslenskt atvinnulíf í öflugu átaki til að bæta þjónustu og stuðning við fólk með fíknisjúkdóma og aðstandendur þeirra.
Átakssjóður um bætta þjónustu við fólk með fíknisjúkdóma
Með stofnun sjóðsins leggur Samherji til öfluga kjölfestu, upp á 20 milljónum króna árlega í 5 ár, sem gerir kleift að leggja af stað í mikilvæga vegferð til að bæta líf og möguleika fólks með fíknivanda. Vonin er að þessi umgjörð laði að sér fleiri fyrirtæki sem vilja sýna samfélagslega ábyrgð í verki og láta gott af sér leiða þar sem þörfin er brýnust.
Fram í september 2026 munu fulltrúar samtakana standa að öflugri söfnun á vegum sjóðsins þar sem leitað verður til íslensks atvinnulífs um að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni. Markmiðið er að safna 200 milljónum króna til viðbótar við stofnframlag Samherja.
Söfnunarmarkmið
Fram til september 2026 fer fram öflug söfnun á vegum sjóðsins þar sem leitað verður til íslensks atvinnulífs um að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni.
Markmiðið
Að safna 200 milljónum króna til viðbótar við stofnframlag Samherja.
Söfnunarráð Samheldni
Einar Logi Vignisson
Svanhildur Þórsteinsdóttir
Patricia Bono
Björgvin Páll Gústavsson
Helen Breiðfjörð
Valgeir Magnússon
Heildarfjárhæð
Með samstilltu átaki er stefnt að því að heildarfjármagn til úthlutunar verði yfir 300 milljónir króna yfir 5 ára tímabil.
Úthlutun
Áætlað er að fyrsta úthlutun úr sjóðnum fari fram í september 2026.
Með því að ná þessu marki strax í haust getum við lagt grunninn að öflugri og langvarandi uppbyggingu þar sem þörfin er sárust.
Samheldni hefur verið stofnað sem almannaheillafélag.
Biskup Íslands er verndari sjóðsins
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, hefur tekið að sér að vera verndari sjóðsins.
Vilt þú styrkja sjóðinn?
Verkefni sem þegar hafa verið valin
SÁÁ – Stuðningur við fjölskyldur og ungmenni
Ráðist verður í að bæta verulega umgjörðina í kringum fjölskyldur þar sem börn eða ungmenni glíma við fíknivanda. Með betri umgjörð og skjótri aðstoð við fjölskyldur er hægt að hafa afgerandi og jákvæð áhrif á framtíð þessara ungmenna.
Hlaðgerðarkot – Smáhýsi til sjálfstæðrar búsetu
Bætt verður þjónusta við einstaklinga sem hafa misst, eða aldrei öðlast, getu til að búa sjálfstætt. Reist verða smáhýsi í landi Hlaðgerðarkots þar sem fólk sem lokið hefur meðferð getur flutt inn, haldið sitt heimili og fengið áframhaldandi stuðning frá meðferðarstöðinni áður en haldið er að fullu út í lífið. Verkefnuið ber heitið; Brú út í lífið.
Meðferðarheimilið Krísuvík – Ný álma og 20 ný rými
Reist verður ný álma við meðferðarheimilið sem mun fjölga gistirýmum um 20, sem er veruleg stækkun. Sem stendur eru yfir 150 manns á biðlista eftir að komast að í meðferð í Krýsuvík.
stjorn@samheldni.is